Burberry klikkar ekki á flottheitunum!
Vorlínan er æðisleg. Litrík og með skemmtilegum munstrum. Mynstrin minna helst á indiána og nota þau mikið af því í hönnun sinni í ár. Kjólarnir eru léttir og í fallegum litum. Beltin eru líka áberandi ásamt loðkrögum. Mér finnst alveg frábært að loðkragarnir fái að njóta sín í vor líka, það er eitthvað sem við Íslendingar getum verið mjög ánægð með þar til sólin fer að ylja okkur!
Kápurnar eru léttar og í æðislegum litum. Bláa kápan er bara sælgæti fyrir augað, hún er það falleg.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.