Það vantar ekkert upp á litagleðina hjá Burberry Prorsum fyrir vorið og sumarið sem er á leiðinni.
Hér má hreinlega sjá allann skalann af áferðum og tónum, allt frá blúndum og jarðlitum yfir í metal og skæra bleika og græna liti. Hönnuðurinn Christopher Baily gerir jafnframt skemmtilegar tilraunir með slár og korsett en flestar flíkurnar eru vel aðsniðnar og kvenlegar í forminu. Einnig er þarna að sjá jakka í bolero sniði og margt fleira fallegt, til dæmis skemmtilega löguð sólgleraugu og litríkar og töff töskur sem minna á læknatöskur í forminu.
Taktu líka eftir förðuninni sem er einföld og náttúruleg með sérstakri áherslu á húðina og fallegar rauðar varir!
Fallegt og vel gert hjá vinum okkar á Englandi…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.