Þá hafa fyrstu myndir af brúðarkjól Angelinu Jolie birst en það voru tímaritin Hello og People sem birtu þær í dag.
Brúðarkjóllinn var hönnun Donatellu Versace en kjóllinn er einstakur að því leiti að börn þeirra Angelinu og Brad Pitts eiga heiðurinn af munstrinu í kjólnum. Á bakhluta kjólsins má nefnilega sjá teikningar eftir þau!
Það var eitthvað minna sem þurfti að hafa fyrir klæðnaði Brads því hann klæddist einfaldlega jakkafötum sem hann átti fyrir inn í skáp.
Leikaraparið lét pússa sig saman um síðustu helgi í suður Frakklandi við leynilega athöfn.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com