…eða hvað?
Það hefur ekki farið framhjá neinum að nördagleraugun svokölluðu eru að detta aftur í tísku.
Nördagleraugnatískan byrjaði fyrst að sjást á tískupöllunum 2010 en varð áberandi á þessu ári enda hafa þekktir aðilar í Hollywood sést með nörda gleraugu.
Má þar nefna David Beckham, rapparinn Jay-Z, on og off hjónakornin Ashton Kutcher og Demi Moore, kynbombuna Scarlett Johansen, Justin Timberlake, Britney Spears og Gisele Bündchen. Listinn heldur endalaust áfram enda frekar heitt lúkk sem hefur einnig náðst til almenningsins. Háskólafólk, listaspírur og viðskiptaheimurinn er engin undantekning enda ramma gleraugun andlitið fallega inn.
Myndband með förðunarkennslu fyrir flottar stelpur sem nota nördagleraugu.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.