Einn af litum haustsins er þessi fölbleiki litur. Ágætis tilbreyting frá dimmum haustlitum að fá þennan bleika lit í litaflóruna fyrir haustið.
Sumum gæti þótt þetta heldur tyggjókúlulegur litur og aðeins of væminn fyrir sinn smekk. Það er allt gott og blessað, en mikið væri þessi litur brillíant í aukahlutverki með svörtu eða dökkgráu dressi til dæmis. Bleikt frá toppi til táar er mögulega heldur mikið af hinu góða fyrir flesta. Mæli þó með að eiga eitt stykki ljósbleika flík eða fylgihlut fataskápnum í haust.
Í septemberblaði breska Vogue má finna þennan bleika myndaþátt þar sem bleika þemað var tekið alla leið.
- Ljósmyndari: Walter Pfeiffer
- Stílisti: Francesca Burns
- Módel: Cara Delevingne
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com