Blake Lively var mætt á verðlaunahafendingu í New York í gær og var þar af leiðandi mynduð í bak og fyrir á rauða dreglinum.
Það er enginn vafi á því að leikkonan er alltaf stórglæsileg, en hún er enn glæsilegri með þessa óléttukúlu sína.
Kjóllinn er úr smiðju Michael Kors
Eins og frægt er orðið á Blake Lively von á sínu fyrsta barni og hefur það vakið mikla athygli hjá aðdáendum hennar og Ryan Reynolds.
Að mínu mati er Blake ein best klædda kona Hollywood í dag, alltaf stórglæsileg á rauða dreglinum.
Sjá fleiri myndir af henni frá ýmsum viðburðum hér að neðan…
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com