Blair Eadie Bee er tískubloggari sem ég hef óskaplega gaman af að fylgjast með á Instagram.
Hún er með kvenlegan en töff stíl sem veitir mér gjarnan innblástur. Blair heldur úti bloggsíðunni Atlantic-Pacific þar sem hún birtir dagsins dress sem mér þætti oftar en ekki gaman að eiga. Hægt er að finna þessa skvísu á instagram: @blaireadiebee. Mæli með því.
Sjáið nokkur brot af instagram myndunum hennar hér – hún er flott ekki satt?!
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com