Black Milk er með gríðarlegt úrval af flottum og öðruvísi leggings í öllum regnbogans litum.
Þetta eru þykkar leggings og því má alveg nota þær sem buxur þrátt fyrir að sumir hafi fordóma fyrir því. Ég sé bara ekki hvaða máli skiptir hvort rennilás og tala sé framaná buxum eða ekki. Það er annað mál þegar stelpur eru í svörtum leggings sem eru þunnar og allt sést í gegn. Það flokkast undir stórslys.
Ég keypti mér rauðar glans leggings fyrir stuttu og bíð spennt eftir að fá þær! Ég ætla að nota þær sem buxur. Ég er búin að leita að rauðum “leðurbuxum” í ár og aldir og fann loksins þessar! Svo eru til bleikar, lime, fjólubláar og allskyns litir fyrir flippketti.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.