Birkenstock – við hefðum aldrei trúað þessu en þessir gömlu góðu hippasandalar eru með heitustu tískutrendum sumarsins þó innrás þeirra hafi formlega hafist síðasta sumar.
Ekki ómerkari tískuspákonur en Olsen tvíburarnir og Heidi Klum hafa sést sporta þessum ofur þægilegu skóm og sjálf Céline
mun fljótlega gefa út sína eigin línu af Birkenstock í samvinnu við framleiðandann.
Hvað finnst þér um þetta trend? Myndir þú þora að mæta á Birkenstock í grillveislur sumarsins?
Já, þegar stórt er spurt…
Skoðaðu myndasafnið hér að neðan til að sækja smá innblástur.
[heimild]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.