Tónleikaferðalag Beyoncé er nú senn á enda. Nú síðast kom hún fram í Brooklyn í Bandaríkjunum þar sem hún frumsýndi tvenn ný dress, bæði hönnuð af Gucci.
Fyrri samsetningin var frekar “casual”. Það samanstóð af röndóttum pallíettubol, hvítum mittisbuxum, rauðum hælum og hatti.
Seinna dressið var mun dívulegra. Stuttur og fleginn kjóll skreyttur pallíettum og fjöðrum. Fullkominn fyrir sviðið.
Svona líta skissur hönnuðarins út. Hönnuður er Frida Giannini.
Stórglæsileg er hún alltaf… já og Gucci flíkurnar ekki síður.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com