Díana sýndi okkur um daginn myndband af nokkrum smart konum sem allar voru komnar yfir sextugt en voru enganveginn hættar að pæla í tísku, förðun og bara útliti yfir höfuð…
…Þá datt mér í hug ein mjög smart kona sem heitir Beatrix Ost en hún er ekki bara smart heldur alveg ótrúlega kúl og frumleg. Beatrix er 71 árs og hefur starfað sem rithöfundur og listakona í gegnum tíðina. Beatrix er með blátt hár og segist ekki getað lifað án varalits enda alltaf með dökkar varir og föla húð. Mér finnst hún einstaklega skemmtileg og flott…og ég held að hún sé mjög klár líka.
I think everybody’s life is interesting. When you really look into it, everything is an adventure.
-Beatrix Ost
Smellið á myndirnar fyrir neðan til að skoða þessa töffarakonu;
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.