Diane Kruger, ein best klædda konan í Hollywood að mínu mati, segir meira vera minna þegar kemur að tísku og förðun…
…Leikkonan og fyrirsætan er hreint ekki hrifin af of mikilli förðun og er óhrædd að deila skoðunum sínum.
„Þú getur ekki klæðst glæsilegum kjól, haft risastórt hár og andlitið sparslað með farða þegar þú ferð út. Bandarískar stelpur gera of mikið af öllu! Það eldir þær um tíu ár,“ sagði Kruger í viðtali við franska Glamour.
Kruger er samt sem áður óhrædd við að prófa sig áfram með förðunarvörur að eigin sögn:
„Ég er til í að prófa allt í tengslum við förðun. Allt frá túrkísbláum eyliner til skærblás augnskugga. Ég farðaði mig þannig nýverið, kærastinn minn var ekki hrifinn… þetta er eitthvað sem höfðar meira til stelpna,“ sagði leikkonan glæsilega.
Með viðtalinu fylgdu svo ljósmyndir af Kruger sem sýndu hana uppstrílaða frá toppi til táar.
_______________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.