Jeremy Scott er þekktur fyrir allt annað en hógværð og klassík í hönnun sinni.
Hann er einn skrautlegasti hönnuður okkar tíma og tekst alltaf að hneyksla og koma fólki á óvart.
Ég rakst á baksviðs myndir frá F/W 11-12 sýningu hans. Einstaklega skemmtilegar myndir. Elska litina, hárið, make-upið og fötin að sjálfsögðu!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.