Baðfötin eru einstaklega flott, fyrirsæturnar svo þokkafullar að það er löngu orðið heimsfrægt og stefið í auglýsingunni alveg frábært:
Hér er baðfatalínan frá Victorias Secret fyrir komandi sumar. Það besta er að þú getur valið toppinn og buxurnar í sitthvoru lagi.
Mikið var að einhver kveikti á perunni með það. Við erum jú allar svo allskonar!
Þú getur valið um margskonar tegundir af bikiníum og sundbolum, litríkt, svalt, svart, seventies, “beisikk”, gyllt, fjólublátt, hippafílinginn og svo mætti lengi telja.
Leyndardómar Viktoríu standa fyrir sínu:
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.