Það sem einkennir tískuna þessi jólin og áramótin eru pallíettur og glitrandi flíkur…
Hvort sem það eru stórkostlega fallegir kjólar, buxur, pils, toppar eða jakkar. Allt er glitrandi fínt og fallegt. Enda eru áramótin tilvalinn tími til að skella sér í fallega glitrandi flík og fagna nýju ári í skemmtilegur áramótapartýi.
Búðirnar eru núna stútfullar af spennandi fötum með fallegum pallíettum svo það ætti ekki að vera erfitt að finna draumaflíkina á morgun.
Svo mikið glimrandi fínt! Hér er bara smá brot af fallegu…
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.