Mér var bent á mjög furðulega síðu um daginn sem heitir FASHIMALS. Þessi síða hefur að geyma klippimyndir þar sem nokkrum helstu tískufyrirmyndum og hönnuðum heims er breytt í dýr…
…Sem dæmi þá er Karl Lagerfeld settur í hlutverk í kisu og Önnu Wintour er breytt í hin ýmsu nagdýr. Þetta er mjög krúttlegt og spes en ég hef ekki hugmynd um hver er á bakvið þessi ‘listaverk’. Elskar þú tísku… – og dýr? Þá er þetta örugglega eitthvað fyrir þig.
Enjoy!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.