Alonso er 5 ára strákur sem býr með mömmu sinni og pabba á Laguna Beach í Californiu. Alonso er orðinn vel þekktur, sérstaklega í tískuheiminum, fyrir að vera svakalega mikill töffari en hann er alltaf með stílinn á hreinu.
Mamma hans er reyndar stílisti og pabbi hans er yfirmaður hjá fyrirtæki í Californiu, en ævintýri Alonso byrjaði þegar að mamma hans fór að setja inn myndir af honum á Instagram í fyrra. Í dag á Alonso sína eigin Instagram síðu þar sem yfir 189.000 manns elta hann. Þessi litla tískulögga og fyrirsæta er yfirleitt dressaður upp í rosalega flottum frá Gucci, Tom Ford, All Saints ásamt fleirum.
Þó svo að sumum finnist þetta kannski einum of mikið þá er ekki hægt að neita fyrir það að Alonso er algjört krútt.
Bjarney Vigdís er mikil áhugamanneskja um allt sem viðkemur heilsu, uppeldi, eldamennsku, tísku, förðun, handavinnu, fegrun heimilisins og öðru pjatti. Hún er menntaður förðunarfræðingur og er jafnframt framúrskarandi húsfreyja sem heldur einnig úti sinu eigin bloggi. Hún býr á vesturlandi í litlum bæ ásamt manni sínum og 6 börnum.