Hönnun Alexanders Wang hefur alltaf verið svolítið kasjúal, karlmannleg og upp á síðkastið, sportý.
Eftir því sem línurnar þróast verða þær bara betri að mati flestra en hér má sjá hreinar og beinar línur í bland við fjölbreyttar áferðir á mjúku leðri og fallega prjónuðum peysum, vel sniðna kjóla, dramatískar kápur og drop dead dásamlega skó…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.