Sarah Burton var undir áhrifum frá neðansjávarlífi þegar hún hannaði vor og sumarlínuna 2012 fyrir Alexander McQueen…
Kóralrif, skrautfiskar og aðrir undraheimar sjávarlífsins voru henni efst í huga við hönnun línunnar en hún lét einnig hafa það eftir sér að þetta snérist allt um íburðinn, eða ‘the excess’…
Unaðslegar flíkur eins og annað sem frá þessu undursamlega tískuhúsi kemur, jafnvel þó við ætlum kannski ekki að skreppa svona í vinnuna.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.