Sumar 2013 lína Helmut Lang var afhjúpuð á dögunum í New York…
…Línan er mjög afslöppuð og töffaraleg en þægindi hafa mjög líklega verið efst á lista þegar línan var sett saman. Víðar buxur og jakkar í karlmannlegum anda voru áberandi ásamt hvítum, gráum og ‘beige’ lit. Mjög flott og sumarleg útkoma! Hárið á fyrirsætunum var svo 100% náttúrulegt og förðununni var haldið í algjöru lágmarki.
Kíktu á myndirnar fyrir neðan…
Myndir fengnar að láni frá STYLE.COM.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.