Það er sniðugt að eiga eins og eina klassíska haust/vetrarkápu eða yfirhöfn.
Við getum verið í fallegu “dressi”, flottum skóm og með töff fylgihluti en ef að yfirhöfnin er ekki í takt þá finnst mér það skemma.
Fyrir ári tók ég saman hugmyndir að kósý og smart haustklæðnaði. Hér er birti ég safn af fallegum haust/vetrar yfirhöfnum úr Pinterest safni mínu.
Ég er sérstaklega spennt fyrir ljósum kápum. Ljósir litir á peysum, bolum, jökkum, kápum o.s.frv. gera það að verkum að það verður bjartara yfir okkur. Þegar við klæðumst hvítu minnka t.d. misfellur í andliti, húðin verður fallegri og ljómar meira.
Falleg yfirhöfn er að mínu mati punkturinn yfir i-ið hvað varðar klæðnað.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.