Tískuvikan í New York stendur nú yfir og þar lætur ljósmyndarinn Tommy Ton sig ekki vanta frekar en fyrri daginn.
Þið hafið eflaust lesið það hér áður að minn uppáhalds götuljósmyndari er án efa Tommy Ton. Ég held því áfram að deila með ykkur litskrúðgri götutískunni sem hann myndar af sinni alkunnu snilld.
Bjartar, hressar og skemmtilegar myndir og klæðnaður fólksins úr öllum áttum, mis smekklegur eins og gengur og gerist.
Myndir fengnar að láni frá Style.com.
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com