Sem nostalgíuperra finnst mér óskaplega gaman að fara í Kolaportið eða róta hjá Braga bóksala og finna gömul tískublöð.
Æskuminningar mínar eru margar hverjar tengdar við tískublöð því ég eyddi tímunum saman við að fletta þeim og skoða. Auglýsingarnar voru yfirleitt uppáhaldið mitt – enda nennti 8ára ég sjaldan að lesa viðtöl og greinar (ómálefnalegt barn, ég veit..)
Hér eru nokkrar af mínum uppáhalds 90’s tískuauglýsingum, fullar af gulli og glamúr.
Gianni Versace var á lífi, varablýanturinn var ekki sparaður og súpermódelin vöfðu tískuheiminum um fingur sér í þá gömlu góðu daga…
Anna Margrét er fædd í Reykjavík árið 1987, en hefur alið manninn í Svíþjóð, Suður Ameríku og víðar.
Anna er krabbi, og þykja þeir hinir kátustu. Tíska, förðun, jafnrétti, skrif og ferðalög um Afríku eru nokkur af hennar áhugamálum.