Ert þú að leita þér að hinum fullkomnu sólgleraugum fyrir sumarið? John Lennon sólgleraugu, “cat-eye” gleraugu og hjartalöguð sólgleraugu verða það allra heitasta í sumar.
Sólgleraugna tískan þetta sumarið verður mjög fjölbreytt! Kringlótt sólgleraugu í anda John Lennon verða t.d. áberandi en stjörnur eins og Lady-gaga, Mary Kate Olsen og fleiri hafa sést útum allt skartandi svona gleraugum.
Í nýju línunum frá stórum hönnuðum á borð við Tom Ford, Gucci, Dior og Boss eru kringlótt sólgleraugu hvað mest áberandi en síðustu ár hafa þau ekki sést mikið meðal almennings, spurningin þetta árið er hinsvegar hver muni ekki sjást skarta svona gleraugum?
Glamúr 50’s kisugleraugu
Svokölluð kisugleraugu í glamúr 50’s stíl eru komin aftur. Ef þú ert að leita þér að fallegum og kvenlegum gleraugum ættir þú að prófa þessi en stjörnur eins og Rihanna, Hillary Duff og fleiri hafa sést með svona glamúr gleraugu undanfarið. Margir hönnuðir þetta árið hafa hannað sína eigin gerð af svona gleraugum og þau eru öll einstaklega mikið glamúr!
Þorir þú hjartlaga sólgleraugum?
Sólgleraugu í allskonar formum hafa einnig sést mikið undanfarið. Ekki bara hjartalaga heldur einnig demanta og jafnvel stjörnulaga gleraugu. Það þora kannski ekki allir að ganga með hjartalaga sólgleraugu en þetta er mjög heitt trend í augnablikinu. Retro hjartalöguð sólgleraugu eru mjög töff ef þú þorir! Hollywood píur eins og Paris Hilton og Drew Barrymore hafa sést með formuð gleraugu í þessum stíl.
Kíktu í albúmið til að skoða myndir af sólgleraugnatrendum sumarsins…
_____________________________________________________________
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.