Nú verða allir að koma sér í partý-fíling! Hátíðar 2011 línan frá TopShop er allavega ‘ready’ í veislurnar og partýin sem oft fylgja vetrinum…
…Kögur, loð, leður og blúnda er áberandi í línunni. Uppáhalds flíkin mín úr þessari Holiday-línu er krúttlegur gulur fjaður-kjóll sem er mjög 20’s-legur í sniðinu. Reyndar er bara öll línan ótrúlega flott að mínu mati. Það sem mér finnst skemmtilegast við hana er að það er eins og hún sé innblásin af nokkrum mismunandi áratugum, sem dæmi er 20’s, 70’s og 80’s áhrif sjáanleg nokkrum flíkunum.
TopShop klikkar ekki!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.