Það má enginn fara í jólaköttinn og því verðum við að dressa okkur vel upp fyrir jólin.
Eins og við vitum allar er fataúrvalið á Íslandi ekki það besta enda fáir sem hér flytja inn föt.
Ef þú ert búin að vera leita þér að kjól og finnur engan skaltu prófa að fara aðeins út fyrir rammann.
Dragðu fram venjulegan svartan kjól úr fataskápnum og finndu þér skó í fallegum lit og hálsmen eða varalit í sama lit.
Oft eru það aukahlutirnir sem skipta mestu máli.
Nokkrir fallegir:
_______________________________________________________________________________
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.