Í dag halda Bandaríkjamenn þakkargjörðardaginn hátíðlegan.
Þetta er ein allsherjar fjölskylduhátíð þar sem fólk sem sjaldan hittist kemur saman og borðar grillaðan kalkún og þakkar þannig indjánum fyrir að leyfa sér að búa í landinu góða.
Í tilefni þessa dags settu kynningarfulltrúar Gucci nokkur vel valin þakkargjörðarlúkk frá tískuhúsinu á netið. Vetrarklæðnaður, kósí og klassí á sama tíma…
Svo eru hérna líka nokkrar myndir af því hvernig hægt er að vera hversdagslegur til fara og á sama tíma fágaður aðeins með því að hnýta einn lítinn bindishnút…
Þau hjá Gucci eru með’etta!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.