Söngkonan Tina Turner er stórglæsileg að vanda á forsíðu þýsku útgáfu tímaritsins Vogue.
Tina er elsta konan sem hefur setið fyrir á forsíðu Vogue og hún gefur ungu ofurfyrirsætunum ekkert eftir. Meryl Streep var sú sem var elst áður en Tina sat fyrir en Meryl var 62 ára.
Tina hefur verið á toppi vinsældarlistanna í fleiri tugi ára og hún lítur mjög vel út þrátt fyrir að vera komin á áttræðisaldur! Hún hefur selt yfir 200 milljón albúma á heimsvísu, unnið fjörug Grammy verðlaun, gefið út tíu plötur og leikið í fjölda kvikmynda.
Söngkonan er hætt að koma fram núna en hún hélt sína síðustu tónleika árið 2009. Hún var þekkt fyrir að gefa ungu dönsurunum sínum ekkert eftir í sviðsframkomu og dansi. Tina býr núna ásamtsambýlismanni sínum til margra ára, Erwin Bach, í Sviss og er orðin Svissneskur ríkisborgari. Henni líkar lífið afar vel í Sviss og vill hvergi annarsstaðar vera. Þetta sagði Tina í viðtali við blað eitt sinn:
Ég er mjög ánægð í Sviss og mér líður eins og heima þegar ég er hér. Ég get ekki ímyndað mér neinn stað sem er betra að búa á en hér.
Tina er og verður einfaldlega alltaf “Simply the Best”
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig