V-Magazine er klárlega með skemmtilegustu tískuritum heims. Risastórt og alltaf fullt af fallegum myndum og skemmtilegu viðmóti.
Í vorheftinu sem þú getur flett hér fyrir neðan er meðal annars að finna flottan myndaþátt eftir Marino Testino, viðtal við Britney Spears, svalar myndir af Gizele og viðtal við 19 ára franska kynbombu sem hvetur allar konur til að nota það sem guð gaf þeim.
Skemmtilegt og örgrandi blað – stútfullt af fínu og fallegu efni. Smelltu bara á það til að stækka upp og fletta. Blaðið byrjar sirka á síðu 82 en fram að því eru ótal fallegar auglýsingar…
[issuu layout=http%3A%2F%2Fskin.issuu.com%2Fv%2Flight%2Flayout.xml showflipbtn=true documentid=110317163353-057d230c353d40e98d1a798341d46cc3 docname=v70spring011 username=vmagazine loadinginfotext=V70%20SPRING%202011 showhtmllink=true tag=britney width=600 height=401 unit=px]Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.