Það er óhætt að segja að Diane Kruger sé ein af flottustu og best klæddu leikkonum í Hollywood í dag. Hún er alltaf óaðfinnanleg og það er einhver svona ‘vintage’ fílingur í henni…
…Þessi fína skvísa prýðir nú forsíðu franska Grazia tímaritsins fyrir október mánuð og inni í blaðinu má svo finna fleiri myndir af henni. Smellið á myndirnar fyrir neðan til að sjá hana í pínu töffarafíling.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.