Sumar Hollywoodstjörnur vilja fylgja rammanum og alls alls ekki stíga út fyrir hann meðan aðrar stjörnur leggja sig allar fram um að stíga út fyrir hann.
Tilda Swinton er ein af þeim. Hún hefur meðal annars framkvæmt hina ýmsu listagjörninga og útlit hennar er langt frá því að vera þetta staðlaða Hollywood útlit. Það sama má segja um kvikmyndirnar sem hún leikur í en Tilda velur sér oft sérstök og góð hlutverk.
Tilda sat nýlega fyrir í myndatöku fyrir tímaritið W og það er óhætt að segja að hún hafi farið langt út fyrir kassann, notað tonn af hárlakki, farða, aukahlutum og fleira fíneríi.
En hvað finnst okkur? Smart eða lummó?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig