Þær fréttir hafa borist að Beckham hjónin eiga von á sínu fjórða barni í sumar en það er ekkert launungamál að þeim hefur lengi langað til að fullkomna klanið með því að eignast litla Beckham stelpu.
Brooklyn, Romeo og Cruz synir Cictoriu og Davids eru sagðir í skýjunum yfir því að eignast lítinn bróðir eða systur og blöðin eiga eflaust eftir að berjast um myndir af því hverju Victoria mun klæðast á meðgöngunni.
Romeo Beckham er á listanum yfir best klæddu mennina hjá herratímaritinu GQ enda alltaf vel tilhafður strákurinn, sem væri kannski ekkert undarlegt nema Romeo er krúttlegi miðstrákurinn og er aðeins átta ára gamall. Hann er sem sé nr 26 á listanum og án efa einn sá yngsti sem hefur verið valin en þessir voru einnig á listanum.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.