Bitching and Junkfood eða bara tíkarlegt og skyndibitamatur eins og maður segir á góðri íslensku er með skemmtilega og flotta netverslun.
Á síðunni eru bæði föt seld undir merkinu Bitching and junkfood og svo eru einnig önnur flott merki eins og Cheap monday, Neurotica og fleiri flott merki. Mér finnst þessi síða geðveik. Það er allt flott og öðruvísi og fötin er alls ekki mjög dýr.
Mig langar eiginlega bara í allt á þessari síðu. Fötin einkennast af flottum sniðum og miklum litum – maður fær smá kítl í kreditkortið við að renna í gegnum myndirnar..
Skoðið og kaupið fallegu fötin HÉR
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.