Í kvöld er okkur öllum, og þér líka… boðið á dömukvöld hjá Heilsusmiðjunni að Smiðjuvegi 4 og hefst það klukkan 20:00.
Ég kíkti á dömukvöld hjá þeim um daginn og viti menn mín vann bara hunangsgelneglur í happdrætti!
Happdrættið verður á sínum stað í kvöld og til mikils er að vinna, svo ég hvet allar til að mæta. Meðal þeirra meðferða sem Heilsusmiðjan býður upp á er Infrarautt sauna, nudd, heilun og margt fleira.
Athafnakonurnar Þóra í Atlanta og Aðalheiður í Kaffitári munu selja smart flíkur af sér og ég þori að lofa heilmiklu fjöri. Líklegast verður prúttað hart um fallegu fötin þeirra beggja.
Á síðasta dömukvöldi var spákona sem spáði fyrir okkur í spil. Það fór um mig þegar hún sagði mér hluti sem enginn hefði getað vitað um mig (!!)
Spákonan verður að sjálfsögðu á sínum stað og það verður forvitnilegt að gæjast inn í framtíðina með aðstoð hennar.
Heilsusmiðjan/YndisseiðurSmiðjuvegur 4 (græn gata) www.heilsusmidjan.is
www.yndisseidur.is
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.