Johnny Depp og Amber Heard eru gengin í það heilaga.
Gamla hönkið (hann er fimmtíu og eins) sem trúlofaðist tuttugu og átta ára dísinni sinni í desember 2013 er búin að fara á skeljarnar en það gerðist á heimili þeirra í LA á þriðjudaginn síðasta en brúðkaupsveislan verður svo á Bahamas um helgina, nánar tiltekið á lítilli eyju sem Johnny keypti sér hér um árið.
Að sögn heimildarmanna slúðurpressunnar vestra passa þau einstaklega vel saman og Amber nær fínasta sambandi við fósturbörn sín Jack, sem er tólf ára, og Lily-Rose sem er fimmtán.
Þegar þau byrjuðu saman var fyrrverandi hans Johnny, franska söng og leikkonan Vanessa Paradis, hinsvegar ekkert sátt enda karlinn að stinga hana af fyrir konu sem er 23 árum yngri en hann sjálfur.
Johnny er víst yfir sig ástfanginn og gat ekki hugsað sér að bíða lengur með að giftast Amber en menn telja að þau hafið valið daginn út frá erfiðri vinnudagskrá. Alltaf brjálað að gera hjá þeim.
„Hún er á setti í London og hann er að fara að taka upp næstu Pirates of the Caribbean í Ástralíu,” sagði vinur þeirra. Þetta er eini tíminn sem þau hafa til að vera saman,” sagði vinur parsins.
Að sögn fleiri félaga þeirra gekk víst sitthvað á hjá þeim í fyrra en þau eru komin yfir hjallann og eru ástfangnari en nokkru sinni fyrr.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.