Dagana 15. til 20. september verða japanskir dagar á Sushi Samba og af því tilefni mætir hinn alþjóðlegi matreiðslusnillingur Kaz (Kazuhiro) Okochi og eldar fyrir gesti staðarins.
Á síðustu 25 árum hefur Kaz unnið sér hylli í matreiðsluheiminum með að endurskapa hefðbunda japanska rétti með skemmtilegu “tvisti” – eitthvað sem hann kallar sjálfur“Freestyle Japanese Cuisine”.
Kaz stofnaði KAZ Sushi bistro í Washinton DC árið 1999 en staðurinn hefur unnið til fjölda verðlauna og meðal fastagesta þar eru bæði þekktir stjórnmálamenn og alþjóðlegar stórstjörnur.
Hann elskar að elda og hefur aldrei viljað gera annað
Kaz er fæddur og uppalin í Nagoya, Japan. Hann hefur frá barnæsku elskað að elda og langaði aldrei um að gera neitt annað í lífinu en verða matreiðslumaður.
Eftir að hafa klárað listnám í Oklomahoma 1982 snéri hann aftur til Japans til að læra franska matargerð við Tsuji Culinary Institute, einn af fremstu matreiðsluskólum Japans.
Eftir námið vatt hann kvæði sínu í kross og kláraði fimm ára nám í sushi og blöðrufiski (blowfisk) í Osaka.
Árið 1988 lét Kaz gamlan Ameríku draum rætast og flutti til Washington D.C. Þar byrjaði Kaz að þróa sinn eigin matreiðslustíl undir áhrifum frá mörgum af bestu matreiðslumönnum Evrópu og Bandaríkjana t.d. Jean-Lois Paladin, Michel Richard, Roberto Donna, Patrick O’Connell, Jose Andres og mörgum fleiri.
KAZ sushi Bistro
Árið 1999 opnaði hann KAZ sushi Bistro í miðbæ Washington, nálægt Hvíta húsinu, World bank og George Washington háskólanum. Staðurinn er einn af vinsælustu japönsku veitingahúsunum í Washington.
Með því að blanda saman alþjóðlegri tækni, bragði og framsetningu spegla réttir Kaz það fjölmenningar samfélag sem Washington er, en á sama tíma er hann trúr japönskum rótum sínum.
Matseðill Kaz á Sushi Samba
Kóngakrabba Sunomono 2.290 kr.
Kóngakrabba salat með gúrku, wacame, rauðlauk og sesamfræjumBleikju Sashimi með fennel 1.390 kr.
Bleikju Sashimi með fennel, rauðlauk og mozzarellaNikujaga 1.890 kr.
Japansk kartöflu „stew“ með þunnskornu nautakjöti, gulrótum, kartöflum og
Dashi-mirin seiðiOkonomiyaki 1.890 kr.
Kál pönnukaka með þunnskorinni svínasíðu, rauðum engifer og bonito flögumKushiage 2.290 kr.
Stökk hörpuskel með svíni, lauk, aspas og miso sósuChawanmushi 1.990 kr.
„Custard“ súpa með sætri kartöflu, rækjum og skötuselEftirréttur 1.790 kr.
Græn te tiramisuSushi platti 5.990 kr.
Laxa nigiri með crem fresh, skarkola nigiri með konbu sölum og shiso, túnfisk nigiri með kalamata ólífum, bleikju nigiri með límónu berki og laxa maki rúlla með basilíku og ananas.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.