Þórunn Antonía Magnúsdóttir, söng og leikkona fæddi litla heilbrigða stúlku í heiminn fyrir viku en fæðingin gekk ekki áfallalaust fyrir sig.
Þórunn gaf Pjatt.is góðfúslegt leyfi til að birta þakkarbréf sem hún vill koma á framfæri til starfsfólks Landspítalans. Við Pjattrófur óskum Þórunni Antoníu hjartanlega til hamingju með litla ljósið sitt og fallegu fjölskylduna.
≈
Í dag er vika síðan að dóttir mín kom í heiminn, sem er viðburður sem ég átti auðvitað von á að myndi breyta lífi mínu stórkostlega og til hins betra, en þetta er miklu meira og stærra en ég gat ímyndað mér og tilfinningin er ólýsanleg sérstaklega að fá loksins að taka hana heim með okkur.
Mér efst í huga, burt séð frá yfirþyrmandi móðurást er þakklæti, þakklæti til allra uppá Landspítala sem tóku þátt í að koma stelpunni okkar óhultri í þennan heim og hjálpa mér að halda heilsu í gegnum þetta.
Fæðingin gekk vægast sagt ekki vel og var mikil þolraun.
Meðal annara flækja fékk ég sjaldgæfa og bráðhættulega meðgöngueitrun (HELLP) og fæðingarferlið var mjög langt og endaði í bráðakeisara einum og hálfum sólarhring seinna, en ég er ekki að skrifa þetta til að fá samúð því ég er alveg óhult þökk sé umönnun þeirra ótrúlegu ljósmæðra, lækna, nema, og annars starfsfóks Landspítalans sem sá um að annast okkur.
Hvert sem var litið var fagmennska, góðmennska sem og nærgætni í fyrirrúmi og greinilegt að allir leggja miklu harðar að sér en sanngjarnt þykir miðað við launin sem eru í heilbrigðisgeiranum.
Það er kannski daglegt brauð fyrir ykkur sem vinnið á þessum deildum að bjarga lífum og taka á móti nýjum en fyrir mig er það svo sannarlega ekki og þess vegna langar mig að opinberlega að hrósa og þakka frá mínum dýpstu hjartarótum Landspítalanum og Fæðingardeild Landspítlans, Meðgöngu -og sængurlegudeild fyrir að koma mér í gegnum eitt það efiðasta en aftur á móti það fallegasta sem ég mun upplifa.
Þórunn Antonía og fjölskylda ♥
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.