Söngkonan Taylor Swift var harðákveðin í því að geyma meydóminn sinn fram að giftingu en þá varð hún ástfangin af Jake Gyllenhaal (33).
Margar stúlkur ganga um með grasið í skónum á eftir Jake og sjá fyrir sér í hyllingum að fara á stefnumót með honum eða jafnvel ganga upp að altarinu með honum, og það var einmitt það sem Taylor hafði ímyndað sér líka.
Taylor ákvað að gefa eftir þegar Jake var búinn að biðja hana margoft að sofa hjá sér og eftir þrjá mánuði var hún komin í bólið með kappanum. Eftir það varð hún ennþá hrifnari af honum og var farin að sjá fyrir sér að eyða ævinni með leikaranum.
Þegar Taylor hélt svo upp á 21 árs afmælið sitt lék allt í lyndi (eða svo hélt hún). Jake ætlaði að mæta í afmælið og allir vinirnir voru mættir til að fagna með dömunni. Jake mætti hinsvegar ekki, lét engan vita hvers vegna hann kom ekki og Taylor endaði með því að vera hágrátandi í sínu fínasta pússi inn á baðherbergi alla afmælisveisluna. Eftir það hættu þau saman.
Söngkonan gaf síðar út plötuna RED en hún er innblásin af sambandsslitum þeirra. Hún er enn mjög miður sín yfir þessu öllu saman en getur huggað sig við að ástarsorgin hefur gert hana eina af söluhæstu söngkonum heims og það virðist ekkert lát vera á vinsældum hennar þessa dagana en Taylor hefur gefið það út að hún þurfi ekki og ætli ekki að fækka fötum til að selja tónlist, tónarnir dugi alveg til að selja.
Taylor á þó án efa eftir að finna sér einhvern sykursætan sem hún á eftir að lifa hamingjusöm með… þó hann sé ekki Jake Gyllenhaal.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig