Fyrir ykkur sem að fylgist með Gossip Girl þá vitið þið auðvitað alveg hver Taylor Momsen er en hún leikur Jenny Humphrey í þeim vinsælu þáttum…
…Sjálf horfi ég ekki á Gossip Girl en mér finnst ég alltaf vera að rekast á einhverjar myndir og greinar um þessa 17 ára leikkonu.
Ég man nú best eftir henni úr bíómyndinni um Trölla sem stal jólunum en þar lék hún litla dúllu sem var góð við Trölla þrátt fyrir að hann væri alltaf að skemma allt.
Þegar ég sé nýjar myndir af henni þá skil ég ekki hvað gerðist. Hárið, fötin og aðallega makeupið er engan veginn að gera sig.
Hún er aðeins 17 ára en hefur víst gert það að vana sínum að flassa uppá sviði þegar hún kemur fram með bandinu sínu, The Pretty Reckless.
Fólk hefur eitthvað verið að tala um að hún sé vel klædd og töff en persónulega finnst mér útgangurinn á henni hrikalegur (já ég hljóma eins og gömul kona) og þetta ‘rokk look’ vandræðalega ‘feik’ eitthvað.
Örugglega margir ósammála mér en ég bara skil ekkert við þessa týpu.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.