Hver væri ekki til í að klæða fínu græjurnar sínar í skrautlega hönnun!?
Marc Jacobs, See by Chloé, Stella McCartney, Christian Louboutin, Lanvin, Miu Miu….og áfram mætti telja. Nú hafa megnið af flottustu hönnuðum heims sett á markað falleg hulstur utan um síma, tölvur og Ipada. Þegar græjan er komin í svona fín (og dýr) föt er eins gott að týna henni ekki.
Net-A-Porter er með frábært úrval af hönnun utan um tæknidót! Hér er brot af því…
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.