Jú ég veit að konur grilla líka en þetta er græja og fyrirsögnin er bara meira grípandi svona.
Á ég ekki bara að slengja þessu út úr mér eins og auglýsingin á Netinu er!
Pjattrófurnar (nema það stendur að sjálfsögðu ekki Pjattrófurnar) kynna:
Fyrsti grill- og eldurnarhitamælirinn fyrir iPhone Touch, iPhone og iPad
Say no more!!… Mig langar í þetta! Myndbandið er mjög í takt við tímann og sýnir kynin akkúrat eins og við erum (öööööö)…..
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=MEFntbudC6k[/youtube]
p.s mér finnst að þau hafi átt að skrifa meat ekki meet í myndbandið hjá kallinum…
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.