Langar þig að fríska upp á útlitið á græjunni þinni ?
Með því að fara á síðuna gelaskins.com getur þú valið t.d símann þinn, fartölvuna eða ipod-inn og látið gera límmiða fyrir þig bæði til að verja græjuna eða gera hana meira töff. Þú getur meira segja hlaðið inn þinni eigin mynd!
Ferlið er einfalt og mjög notendavænt og ætti ekki að vefjast fyrir neinum en þetta er klárlega frekar svalt fyrir nördinn í þér.
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.