Ég hef alltaf átt frekar erfitt með að velja mér ilmvatn til að nota því mörg hver finnst mér óþægilegt að hafa á mér. Af sumum fæ ég hausverk og önnur bara angra mig. Ég veit ekki hvað ég hef farið oft í gegnum fríhöfnina eða snyrtivöruverslanir með fjöldann allan af strimlum sem búið er að spreyja á nýjustu ilmunum, alveg orðin rugluð í nefinu og með höfuðverk. Svo endar oftast með því að ég kaupi ekki neitt ilmvatn og fleygi öllum strimlunum.
Þess vegna varð ég svo ánægð þegar ég fékk nýtt ilmvatn sem ég er alveg kolfallin fyrir. Þetta er nýr ilmur frá Puma og heitir Urban Motion. Hann er rosa léttur og hentar í raun við hvaða tækifæri sem er. Það er alveg til að toppa góða æfingu að spreyja þessum á sig eftir sturtuna því maður verður alveg extra ferskur á eftir af því ilmurinn er pínu sætur en samt virkilega frísklegur.
Glasið sjálft er einfalt en sportlegt enda auðvitað frá sportfyrirtækinu Puma og að sjálfsögðu er Pumadýrið á glasinu. Glasið er glært með rauðu baki svo það lítur út fyrir að sjálft ilmvatnið sé rautt líka. Mjög fínt.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.