Óskarinn fór fram með pompi og prakt í nótt. Mikið var um fallega kjóla og fallegar farðanir á rauða dreglinum í ár og ákaflega spennandi að skoða stíl stjarnanna.
Ég tók saman nokkrar myndir sem sýna förðun þeirra vel. Mikið var um nude varir og rauðar varir í ýmsum tónum og augnförðunin einkenndist af hlýjum brúnum og brons tónum. Húðin var einstaklega falleg og ljómandi á flestum stjörnunum en mest áhersla er á húðina og ljóma hennar þessa dagana.
Jessica Chastain
Brúnn eyeliner og nude varir. Finnst brúni eyelinerinn æðislegur.
Chrissy Teigen
Látlaus hlý aungförðun og dökkrauðar varir. Aðeins of ýktar og klunnalegar varir fyrir minn smekk
Jennifer Lopez
Bronslituð augnförðun, eyeliner og fölbleikar varir
Dakota Johnson
Bronslitaður augnskuggi og djúpar rauðar varir. Finnst þessi förðun sjúklega flott
Cate Blanchett
Látlaus augu og látlausar varir. Finnst þessi förðun pínu líflaus
Emma Stone
Brún dökk aungföðrun og appelsínu rauðar varir
Margot Robbie
Áhersla á varirnar, appelsínu rauðar varir og þunnur eyeliner
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir sem sýna förðunina á Óskarnum 2015. Mér finnst förðunin þeirra mjög falleg í heildina en hefði samt vilja sjá kannski eitthvað aðeins meira út fyrir boxið.
Annika Vignisdóttir er förðunarfræðingur og nemi í MSc markaðsfræði í HR. Hún, sem er fædd í meyjarmerkinu, elskar gjörsamlega allt sem tengist förðun, húðumhirðu og snyrtivörum en hefur einnig mjög gaman af dansi, tísku, hreyfingu og fólki með svartan húmor. Annika lifir samkvæmt þeirri hugmyndafræði að gera sem mest af því sem er skemmtilegt. Ef þú hefur fyrirspurnir varðandi förðun eða samstarf er þér velkomið að hafa samband við hana í gegnum mail: annikavignis@gmail.com