Flest fólk hefur þörf fyrir kynlíf en stundum vill það bara nánd, snertingu og knús frá gagnstæðu kyni, nú eða sama kyni. Að vilja kynlíf og nánd og að vilja fara í samband er nefnilega ekki endilega það sama.
Kynlífið er að sjálfsögðu meira en bara samfarir. Kynlíf er einmitt snerting, nánd og knús – og svo margt, margt meira. Í Coda bókinni (Codependents Anonymous) þar sem fjallað er um meðvirkni, er sagt að eitt einkenni meðvirkni sé að sætta sig við kynlíf þegar að þú vilt ást.
Ég held að þarna verði að mætast tveir aðilar sem eru svipað staddir, tilbúnir í kynlíf eða knús, án þess að fara í allan pakkann – eða a.m.k. ekki strax. Kannski með þeim formerkjum að þessir tveir einstaklingar séu ekki að stunda kynlíf með öðrum einstaklingum líka – eða hvað? Verst að þetta er ekki allta svona einfalt, kannski byrjar þetta svona en hvað ef vakna tilfinningar hjá öðrum aðilanum en ekki hinum? Það gerist ansi oft.
Er hægt að stunda kynlíf saman í langan tíma án ástar?
Það hlýtur a.m.k alltaf. að koma einhvers konar væntumþykja. Þá gæti hin/n meðvirki/meðvirka farið að sætta sig við kynlífið til að halda í elskhugann. Það væri auðvitað óheiðarlegt og hann væri ekki að virða tilfinningar sínar. Það mikilvæga er nefnilega að báðir aðilar komi hreint fram, – láti vita hvað þeir vilja, langar og þurfa og á hvaða forsendum.
Eru forsendur beggja samræmanlegar?
Hættan við að byrja of brátt í sambandi eftir að öðru líkur er að fólk er hreinlega ekki búið að ná áttum og ekki búið að ganga í gegnum sorgarferlið sem óhjákvæmilega á sér stað eftir skilnað. Ætli jafnvel að fresta því eða taka “short cut” með því að finna sér annan maka of fljótt.
Ef til vill er hægt að vinna þetta samhliða; ef fólk fer hægt í sakirnar og gefur hvort öðru tilfinningalegt rými og frelsi. Margir leita að aðila til að eiga kynlíf með, – en vilja ekki fara í allan fjölskyldu- og ættarmótapakkann svona í sömu vikunni og það er í lagi svo lengi sem allir eru á sömu síðu og til í að fara á svipuðum hraða. Sambönd verða að fá sinn tíma til að þroskast og þróast og við flýtum þeim ekki, þá er alltaf hætta á að eitthvað bresti. Sambönd verða að byggja á gagnkvæmni, ekki ótta annars aðilans við að missa hinn – og alls ekki á lygi.
Mr. Right er þolinmóður
„Ég hitti þennan mann, ég var ekki alveg tilbúin en ég var svo hrædd um að ég væri að missa af tækifærinu ef hann væri sá rétti” sagði kona nokkur.
Ef maðurinn er virkilega sá eini rétti þá gefur hann henni sinn tíma og er þolinmóður og öfugt. Ef það er til eitthvað sem heitir “Mr. Right” eða “Mrs. Right” – fyrir okkur, þá er þessi aðili hinn rétti og ekkert breytir því.
Jóhanna Magnúsdóttir, Lausninni
“Love is not something we give or get: it is something that we nurture and grow, a connection that can only be cultivated between two people when it exists within each one of them – we can only love others as much as we love ourselves” (Brené Brown, PhD).
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.