Það er ótrúlegt hvað fólk breytist á milli ára en það er ennþá ótrúlegra hversu mikið það breytist þegar það er komið í “Glysborgarstílinn”.
Þegar fræga fólkið er að stíga sín fyrstu skref þá er óhætt að segja að það sé ekki ennþá búið að finna sinn persónulega stíl (eða stílistinn þeirra fyrir þau). Margir eru ungir og sakleysislegir á meðan aðrir líta töluvert betur út eftir breytingarnar, sumir yngjast jafnvel — en það er ekki bara stílistanum að þakka.
Flestar dömurnar leggja af og tóna líkamann sinn þegar þær eru komnar með “the golden ticket” í Hollywood, hárið síkkar og fatastíllinn gjörbreytist.
Hér að neðan getur þú séð nokkrar frægar í Hollywood og breytingarnar á þeim gegnum árin.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig