Cosette Munch er 18 ára stúlka sem kemur frá Stokkhólmi í Svíþjóð. Hún er löngu orðin lookbook stjarna og fá myndirnar hennar alltaf mjög góð viðbrögð enda mjög flott stelpa.
Það sem einkennir Cosette helst er fallega rauða hárið hennar. Ég held ég hafi sjaldan séð jafn flott hár! Hún er ein af þessum sem er alltaf samkvæmt nýjustu tískustraumum en nær samt að skera sig úr hópnum og vera öðruvísi og töff.
Cosette heldur einnig upp skemmtilegu og vinsælu bloggi. Ég verð hálf dáleidd af því að skoða myndir af henni. Þetta hár langar mig í !
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.