Ef marka má framleiðanda þessa magnaða tækis er tímabært að gleyma öllu um fegrunaraðgerðir og botox.
Þetta æfingartæki á að útrýma öllum hrukkum í kringum munninn og kjálkann og lyfta augnsvæðinu hærra upp. Það eina sem þú þarft að gera er að nota það samviskusamlega, þrjár mínútur á dag, alla daga vikunnar. En það er auðvitað lítið mál því þetta lítur jú alveg eins út eins og munnur svo það tekur enginn eftir því… eða hvað?
Tækið heitir á ensku: The Face Slimming Mouth Exerciser en seljandinn lofar því að reglubundin notkun muni hiklaust bæta útlitið:
„Tækið vinnur á hrukkum í kringum augun og bætir heildarlögun á andliti, hvort sem þú stendur fyrir framan spegilinn, æfir í baði eða á hvaða heppilega tíma dagsins sem er. “Hreyfingarnar verða strembnari með munnmótinu en það kallar á aukinn styrk í vöðvunum sem síðan mun bæta ásjónu þína og gera þig unglegri.
Tækið kostar rúmlega 7000 krónur sem er frekar mikið í lagt fyrir plaststykki sem lítur út eins og opinn munnur en þetta er þó ekki eini valkosturinn sem söluaðilinn býður á móti fegrunaraðgerðum því þú átt líka að geta sleppt því að fara í botox með því að nota þennan plástur hérna.
Og svo er það munntitrarinn sem gerir víst alveg gæfumuninn ef þú vilt svolítið þykkari varir og fallegri munnsvip.
Spurning hvort maður splæsi sér ekki í allann pakkann? Ég yrði eflaust voða fín með varirnar og plásturinn í umferðinni í höfuðborginni. Væri ekki best að nýta þessar 3 mínútur bara þegar maður er í akstri? Eða ræktinni?
Um að gera að vera sætur. Þú getur skoðað úrvalið hér.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.