Á síðasta ári setti Biotherm ár markað sinn fyrsta herrailm. Ilmurinn fékk nafnið Force Homme og fellur undir Supreme anti-aging húðlínuna sem leikarinn Chris Noth hefur tekið að sér að kynna.
Hann þekkjum við flestar sem Mr. Big úr Sex and the City!
Ilmurinn er hlýr og fjölbreyttur, mildur en á sama tíma kraftmikill og sexý. Þú finnur keim af sítrus, absintu, kardimommum, ‘sweet grass’, patchouli og amber. Þetta er ilmur fyrir þroskaða karlmenn, eldri en 25 ára, sem vilja mildan ilm og ekki of áberandi en á sama tíma með sterkum og flottum karakter.
Biotherm Force Homme er fáanlegur í 55 og 100 ml Eau de Toilette flöskum en jafnframt í sturtusápu og deo.
Yndislegur ilmur…
… og sætur maður!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=4JOpexMCbso[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.