Það er unnusti og barnsfaðir hinnar íðilfögru Natalie Portman, Benjamin Millepied, sem hefur tekið að sér að leika í auglýsingum fyrir nýja herrailminn frá Yves Saint Laurent, L’Homme Libre
L’Homme Libre er tilbrigði við ilminn L’Homme sem kom á markað árið 2006 en L’Homme Libre kom á markað í september síðastliðnum.
Ilmurinn ber í sér blöndu af bergamot, bleikum pipar og ljúfu patchouli lyktinni.
L’Homme Libre er ilmur sem karlmaðurinn getur borið á hverjum degi, þar sem hann er ferskur og ‘ungur’ en á sama tíma karlmannlegur og góður. Það eru þefararnir Olivier Polge og Carlos Benaim sem eiga heiðurinn að L’Homme Libre en þeir hafa báðir skipað sér fremst meðal jafningja í samsetningu góðra ilma.
Kíktu hér á dansarann sem Natalie féll fyrir þegar hún lék Svarta Svaninn… verulega fallegur strákur!
__________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=zQUDvpknLtA[/youtube]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.